Einkaleyfisvarða Flutex™ ferlið
Einkaleyfisvarið tækniferli Flutex™, fjögurra þrepa hreinsunarferli sem fjarlægir þungmálma og önnur mengunarefni. Þessi umhverfisvæna og efnafræðilega aðferð hreinsar fitusýrurnar og eykur gæði olíunnar miðað við aðrar hreinsunaraðferðir þar sem notast er við efni og aðferðir sem minnka gæði.
Omega-3 fitusýrur
Næringarefnin EPA og DHA eru tegundir ómega-3 fitusýra og gegna þær mikilvægu hlutverki í líkamanum sem nauðsynleg byggingarefni frumuhimna auk þess að stuðla að eðlilegri virkni hjarta, augna og heila. Taugar innihalda mikið magn af ómega-3 fitusýrunni DHA og því er inntaka DHA mikilvæg til þess að veita taugum nauðsynleg næringarefni. Afleiðingar þess að fá ekki nóg af DHA úr fæðu gætu verið skert geta líkamans til að læra, hugsa, muna og viðhalda hraustum og hamingjusömum heila. Þá er DHA í líkamanum nauðsynlegt til þess að viðhalda góðri sjón.
E-vítamín
Náttúrulegt E-vítamín sem dregur úr oxunarferlum fitusýra og viðheldur ferskleika þeirra
D3-vítamín
Þetta er nauðsynlegt næringarefni sem stuðlar að heilbrigðri uppbyggingu líkamans með því að styðja við ónæmiskerfið. Auk þess stuðlar það að heilbrigði vöðva, tauga og hjartastarfsemi ásamt því að bæta svefn.