Náttúrulegur augabrúnablýantur fyrir fullkomna mótun. Skerptu á augabrúnunum með augabrúnablýantnum og notaðu síðan burstann á hinum enda blýantsins til þess að móta hárin á auðveldan hátt. Hægt að nota fyrir náttúrulegt útlit eða mikla skerpingu og skapa þannig djarfara útlit.
Litarefni úr náttúrulegum steinefnum. Kemur í tveimur litatónum ljósbrúnum og dökkbrúnum.
Inniheldur nærandi hráefni úr jurtum eins og gullkoll og jójóbaolíu sem fara vel með húðina og fylla augabrúnirnar.