Þessi bursti er fullkominn til þess að skapa nákvæma augnförðun. Stutt hárin eru hallandi á annarri hliðinni sem gerir þér kleift að vinna mjög nákvæmt með liti eða skyggingu.
Hentar einstaklega vel til þess að leggja áherslu á ytri augnkrók, í kringum augnháralínu og við skyggingu á augnlokum.
Burstinn virkar vel með klassíska Eyeshadow Blender Brush.
Burstinn er vegan og skaftið er úr gæða við.
Notkun
Notaðu burstann til þess að ýta augnskuggalit á viðkomandi svæði með burstanum. Notaðu varlega strokur fram og til baka fyrir blöndun.
Þrif: Þvoðu burstahárin undir volgu vatni og notaðu t.d. milda sturtusápu til þess að búa til mjúka froðu í lófanum með burstanum.
Skolaðu burstann vel og kreistu vatnið varlega úr burstanum með því að strjúka honum út á við. Strjúktu burstanum varlega í sitt fyrra form. Leggið á handklæði og látið þorna við stofuhita.