fbpx

Fáðu 20% afslátt af öllum vörum í vefverslun Kavita með því að skrá þig á póstlista.

Kollagen

3.750 kr.

Styrkir húð, hár og neglur. Vatnsrofið kollagen og þorskprótín ásamt sérvöldum vítamínum og steinefnum.

Íslenskt í húð og hár. Öflug rakagefandi kollagen formúla. Viðheldur teygjanleika húðarinnar, styrkir bein og vöðva. Kollagen er mikilvægt fyrir heilbrigt hár og virkar vel gegn hárlosi.

Vísindaleg formúla sem inniheldur hágæða kollagen úr íslenskum þorski, ásamt c vítamíni sem styður við nýtingu kollagens í líkamanum. Í formúlunni má einnig finna hyaluronic sýru sem er mikilvæg líkamanum til að viðhalda raka í húð og liðum en sá náttúrlegi eiginleiki líkamans minnkar með aldrinum.

Kollagen er eitt helsta byggingarefni líkamans og sér til þess að vefir líkamans haldist sterkir og viðheldur teygjanleika vegna einstakra amínósýrusamsetningar. Framleiðsla á kollageni minnkar aftur á móti með aldrinum. Þegar kollagen framleiðslan minnkar byrja vefir líkamans að veikjast og það fer að bera á ýmsum öldrunareinkennum. Áhrifanna gætir í húðinni því með minni kollagen framleiðslu byrja að myndast hrukkur í húðinni og teygjanleiki hennar minnkar, því er talið æskilegt að fólk taki inn kollagen eftir 28 ára aldur.

Þessi hágæða blanda er byggð á íslensku hugviti og er afrakstur áralangra rannsókna- og þróunarvinnu á SeaCol* og Iceprotein sem er unnið úr íslenskum þorski.

Notkun

Takið 3 hylki á dag með mat eða vatnsglasi eða samkvæmt ráðleggingum læknis.

Innihaldsefni

SeaCol (vatnsrofið kollagen úr íslensku fiskroði), IceProtein (vatnsrofið íslenskt þorskprótín), níasín (nikótínamíð), sink (sink glúkonat), ríbóflavín, kopar (kopar glúkonat), bíótín og maldódextrín úr kartöflum.

Tengdar vörur

Scroll to Top