fbpx

Fáðu 20% afslátt af öllum vörum í vefverslun Kavita með því að skrá þig á póstlista.

Liðir

4.150 kr.

Einstök og háþróuð formúla fyrir liði, brjósk og bein. Inniheldur sæbjúgna ekstrakt og vatnsrofið þorskprótín, túrmerik, c-vítamín og d-vítamín.

Liðir er kollagenrík formúla sem kalla má undraefni fyrir liði, brjósk og bein. Það sem gerir vöruna einstaka er innihaldsefnið sæbjúgnaextract sem er unnið úr skráp villtra sæbjúgna sem eru veidd í hafinu við Ísland.

Formúlan er sérþróuð sem stuðningur við þá sem vilja bæta heilsu liða, brjósks og beina. Formúlan inniheldur einnig vatnsrofið þorskprótín fyrir viðhald vöðva og önnur mikilvæg efni fyrir heilbrigði brjósk og beina.

Liðir er með viðbættu C-vítamíni sem hvetur eðlilega myndun kollagens í brjóski, D-vítamíni
sem er mikilvægt fyrir heilbrigði beina þar sem það stuðlar að frásogi kalks úr meltingarvegi og mangani sem er nauðsynlegt við myndun á brjóski og liðvökva. Túrmerik er svo ákaflega ríkt af jurtanæringarefninu curcumin.

Liðir inniheldur Cucumaria frondosa extrakt sem unnið er úr skráp villtra sæbjúgna sem veidd eru í hafinu við Ísland. Skrápurinn er að mestu leyti úr brjóski og er því mjög ríkur af kollageni en einnig lífvirka efninu chondroitin sulphate. Þar að auki er skrápurinn mjög næringarríkur og inniheldur hátt hlutfall af sínki, joði og járni. Sæbjúgu eru oft kölluð Ginseng hafsins vegna þess að þau innihalda lífvirka efnið sapónín

Notkun

Takið 4 hylki á dag með mat eða vatnsglasi eða samkvæmt ráðleggingum læknis.

Innihaldsefni

SeaCur® (blanda af extrakti úr íslenskum sæbjúgum, vatnsrofnu íslensku þorskprótíni og maldódextríni úr kartöflum), túrmerik, C-vítamín (askorbínsýra), D3-vítamín (kólekalsíferól) og mangan (mangan glúkónat). Hylkin eru úr jurtabeðmi.

Tengdar vörur

Scroll to Top