fbpx

Fáðu 20% afslátt af öllum vörum í vefverslun Kavita með því að skrá þig á póstlista.

MAG-YOUR-MIND®

3.490 kr.

MAG-YOUR-MIND® inniheldur einstaka blöndu sem hönnuð er til að minnka streitu og vinnur gegn þreytu. Inniheldur magnesíum glycinate, burnirót, schisandra og b-vítamínum.

SKU 5949212000024 Vöruflokkur : , , , Merki :

MAG-YOUR-MIND® er einstök og háþróuð formúla sem hönnuð er til þess að minnka streitu og þreytu. Inniheldur magnesíum glycinate sem er það form magnesíum sem líkaminn á auðvelt með að taka upp og er einnig mikilvægur stuðningur við starfsemi taugakerfisins.
Inniheldur einnig blöndu af adaptógenum og b-vítamínum sem hafa eiginleika til þess að viðhalda heibrigði taugakerfisins, hefur róandi áhrif og geta dregið úr streituhormónum og bætt svefngæði. Mögnuð formúla sem getur hjálpað þér að halda jafnvægi, ró og einbeitingu yfir daginn. Hentar vel þeim sem þurfa daglegan stuðning eða fyrir streitu- og þreytutímabil. Formúlan er sýruþolin sem tryggir góða upptöku næringarefna í líkamanum. Að auki hentar þessi blanda þeim sem þola ekki magnesium oxide og magnesium citrate.

Magnesíum glysiníð (bisglýsínat)
300 mg
Magnesíum gegnir mikilvægu hlutverki í starfsemi taugakerfisins, verandi stuðningur gegn oxunarálagi og skerðingu taugafrumna. Magnesíum glysiníð er komplex sem myndast á milli magnesíums og amínósýrunni glýsín sem er þolið gegn magasýru og sýnir mikinn stöðugleika í þörmum.

B6 vítamín
5 mg
Inntaka B6 er mikilvæg þar sem líkaminn nær ekki að framleiða vítamínið sjálfur. B6 veitir mikilvægan stuðning til miðtaugakerfisins og tekur þátt í myndun efnasambanda sem stjórna skapi og heldur þeim í jafnvægi í heilanum. Þar að auki dregur B6 vítamín úr leiða og þreytu þar sem það styður við mikilvæg efnaskipti eins og myndun seretóníns og dópamíns.

B9 vítamín ( fólínsýra)
200 mcg
Sem hluti af B-vítamínfjölskyldunni hefur B9 eða fólínsýra margvíslega virkni, allt frá frumuskiptingu til geðheilsu. Það tekur þátt í að viðhalda eðlilegri starfsemi taugakerfisins og draga úr þreytu. Rannsóknir sýnir að lágt magn af fólati geti tengst andlegri vanlíðan. Með því að tryggja eðlilegt magn B9 í líkamanum er hægt að tryggja stuðning við andlegt jafnvægi.

Burnirót
100 mg
Burnirót eða Rhodiola rosea er planta með kröftuga virkni og eiginleika sem hjálpar líkamanum að aðlaga sig að daglegum áskorunum, hvort sem það er líkamlegum eða andlegum. Rhodiola rosea ekstrakt hefur eiginleika til þess að draga úr magni „streituhormóna“ og hefur jákvæð áhrif á streitutengda þreytu og höfuðverk. Burnirót virðist einnig geta haft áhrif á aukið magn „hamingjuhormónsins“ serótóníns og veitt stuðning við verndun taugafrumna.

Schisandra chinensis
75 mg
Schisandra chinensis er planta sem þekkt er fyrir að mynda adaptógen sem stundum er kallað „streituvítamín“. Rannsóknir benda til þess að adaptógen geta aukið hæfni til að laga sig að streitu. Schisandra chinensis ekstrakt veitir líkamanum stuðning við að takast á við slæman eða ofhlaðinn dag með því að draga úr magni streituhormóna og getur komið jafnvægi á samskipti milli þeirra þátta í líkamanum sem stilla af viðbrögð við streitu.

hylki

30

Notkun

Mælt er með MAG-YOUR-MIND á streitu- og þreytutímabilum. Blandan er einnig hentug sem stuðningur gegn mígreni eða einkennum fyrirtíðaspennu. Magnesíum glysiníð hefur hefur endurnærandi eiginleika, stuðlar að náttúrulegri svefnörvun og eðlilegu magni magnesíums í blóði.

1 hylki daglega með máltíð eða vatnsglasi, eða samkvæmt tilmælum sérfræðings.

Ekki er mælst með því að þungaðar konur eða konur með barn á brjóstu ættu að taka inn MAG-YOUR-MIND vegna þess að blandan inniheldur burnirót.

Innihaldsefni

Magnesium bisglycinate complex (80% Mg bisglycinate, 20% Mg Oxide) 300 mg 16% DV
Rhodiola rosea root dry extract
(3% rosavins, 1% salidrosides) 100 mg**
Schisandra chinensis fruit dry extract 4:1
2% schisandrins) 75 mg **
Vitamin B6 5 mg 357%
Vitamin B9
(Folic acid) 200 mcg 100%

**Daily value not established

Tengdar vörur

Scroll to Top