Andlitsolía með brúnku sem hönnuð er sérstaklega fyrir andlitið. Lúxus andlitsbrúnka í olíuformi sem fer hratt inn í húðina án þess að skilja eftir sig feitt lag. Glær olían er einstaklega létt og einföld í notkun, rennur mjúklega yfir andlitið og safnast ekki fyrir á þurrari svæðum andlits og háls. Gefur náttúrulegan ljóma og gyllta brúnku.
Facial Self-Tanning Oil er 100% úr náttúrulegum og lífrænum hráefnum sem hafa einstaklega nærandi áhrif á húðina. Gefur andlitinu góðan raka og náttúrulegan og sólarkysstan ljóma í allt að 7 daga eftir notkun.
Olían er hrein og tær og smitar ekki lit í föt eða rúmföt. Líkt og aðrar vörur frá Tan Organic þá inniheldur þess vara engin paraben, súlföt, þalöt eða önnur óæskileg efni