fbpx

Fáðu 20% afslátt af öllum vörum í vefverslun Kavita með því að skrá þig á póstlista.

COMFORT-U®

4.190 kr.

COMFORT-U® er kröftug blanda náttúrulegra innihaldsefna sem veita þvagfærunum stöðuga vernd. Virkar bæði sem fyrirbyggjandi og við bráðari tilfellum. Blandan inniheldur D-mannósa, trönuber, sortulyng og flórubætandi góðgerla.

SKU 5949212000031 Vöruflokkur : , , Merki :

Kröftug formúla sem hjálpar þér að viðhalda heilbrigðu þvagfærakerfi og koma í veg fyrir óþægjindi. Formúlan er vel varin í sýruþolnum hylkjum sem tryggja að næringarefnin haldist í sínu náttúrulega formi og leysist upp og virkjast á réttum stað í líkamanum, en ekki maganum.
Áhrífarík blanda sem inniheldur 500 mg af D-mannósa, 100 mg trönuberja ekstrakt, 50 mg af sortulyngs ekstrakt ásamt 1 milljarði CFU af L. reuteri góðgerlinum. Einnig til í duftformi.

D-mannósi: D-mannósi er einsykrungur sem miðar áhrif sín á skaðlegar bakteríur með því að herma eftir yfirborði þeirra svæða þvagrásarinnar sem þær geta fest sig við. Það þýðir að bakteríurnar geta ekki lengur fest sig við frumurnar og valdið meðfylgjandi óþægindum – bakteríurnar haldast því lausar í þvaginu þar sem þær hafa engin áhrif. D-mannósi er almennt þekktur fyrir að vinna gegn þrálátum kvillum í þvagrásinni.

Trönuber: Ímyndaðu þér alla kosti trönuberjasafa án þess að þurfa að innbyrða allan sykurinn og hitaeiningarnar! Virku innihaldsefnin í stöðluðum trönuberjaekstrakt eru proanthocýanídín (PAC), náttúruleg efnasambönd sem plantan framleiðir og hafa jákvæð áhrif á heilbrigði þvagfæranna. Þau hafa þann eiginleika að bindast við festiþræði baktería og koma þannig í veg fyrir að þær geti fest sig við slímhúð þvagrásarinnar.

Sortulyng: Arctostaphylos-sortulyngs ekstrakt hefur margs konar samverkandi áhrif sem styrkja heilbrigði þvagfæranna og hjálpar einnig við upptöku trönuberja í líkamanum. Sortulyngs ekstrakt inniheldur meðal annars Arbutin sem berst gegn skaðlegum bakteríum. Rannsóknir hafa sýnt fram á að Arbutin virkar vel til að viðhalda góðri heilsu þvagfæranna og að áhrifin eru til staðar til lengri tíma.

Lactobacillus reuteri: Stofn góðgerla sem eiga þátt í að viðhalda góðri þvagfæra-, leggganga- og þarmaflóru, vegna þess að þeir mynda efni sem koma í veg fyrir að skaðlegar bakteríur nái að þróast. Lactobacillus reuteri. eða L. reuteri getur endurheimt eðlilegt ástand þvag- og kynfæra en lágmarksmagn sem þarf til þess er 1 milljarður CFU (þyrpingamyndandi einingar).

hylki

30

Notkun

Mælt er með COMFORT-U® fyrir þá sem fá ítrekaðar þvagfærasýkingar og til þess að viðhalda heilbrigðu sýrustigi í þvagfærum. Virkar bæði gegn einkennum og til þess að fyrirbyggja þvagfærasýkingu.

Fyrirbyggjandi aðgerðir: Taktu 1 hylki á dag með vatni eða samkvæmt læknisráði.
Meðferð við þvagfærasýkingu: Taktu 2-3 hylki á dag með vatni eða samkvæmt læknisráði.

Innihaldsefni

D-Mannose 500 mg **,
Cranberry fruit (Vaccinium macrocarpon) dry extract (50% PACs) 100 mg **,
Bearberry leaf (Arctostaphylos uva-ursi) dry extract (20% arbutin) 25 mg **,
Citrus bioflavonoids (60% Hesperidin) 50 mg**, Lactobacillus reuteri 1 billion CFU**

**Daily value not established

Tengdar vörur

Scroll to Top