fbpx
 

Húðþrenna

kr.5.990

 

Samanstendur af Collagen Skin, Húð, hár & neglur og Astaxanthin

Húðþrennan er frábær pakki af vörum fyrir þá sem vilja dekra við, styrkja og næra húðina innan frá.
Þrennan inniheldur Íslenskt Astaxanthin, Húð, hár og neglur ásamt Collagen skin.

Íslenskt Astaxanthin er öflugt andoxunarefni og verndar taugafrumurnar og getur hægt á áhrifum aldurstengdra minnisglapa. Astaxanthin hefur frábæra eiginleika fyrir húðina og veitir sólarvörn auk þess að viðhalda rakastigi húðarinnar, mýkt og teygjanleika og dregur úr fínum hrukkum. Astaxanthin er talið geta minnkað bólgur, bætt þrek og endurheimt eftir þjálfun og þannig getur Astaxanthin stuðlað að auknum árangri hjá íþróttamönnum.

Húð, hár og neglur eru öflugar þaratöflur sem samanstanda af tveimur sæþörungum Ascophyllum nodosum og Laminaria digitata. Þessi blanda er talin hafa góð og nærandi áhrif á húð, hár og neglur. Þaratöflurnar hafa hreinsandi áhrif á likamann og inniheldur blandan ríkulegt magn steinefna og trefja ásamt joði. Þaratöflurnar eru framleiddar úr íslenskum sæþörungum sem safnað er á sjálfbæran hátt á Vestfjörðum.

Íslenskt kollagen og íslenskir sæþörungar – með viðbættu c-vítamíni. Kollagen styrkir vefi líkamans og sér til þess að þeir haldist sterkir. Kollagen er eitt helsta uppbyggingarprótein líkamans og er eitt af þeim efnasamböndum sem eru húð okkar mikilvægust. Sæþörungar hafa lengi verið þekktir sem ofurfæða hafsins. Þörungarnir eru ríkir af steinefnum, trefjum og joði og með reglulegri inntöku er hægt að viðhalda næringaríkri húð, hár og nöglum sem gerir þessa húðblöndu einstaka og mjög virka.

Description

H
Húðþrennan samanstendur af Collagen Skin, Húð, hár & neglur og Astaxanthin

 

Notkun:
Takið 1-2 hylki á dag með vatni.
Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.  Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar fæðu. Geymið þar sem börn ná ekki til.

Reviews (0)

Reviews

There are no reviews yet.

Be the first to review “Húðþrenna”

Your email address will not be published. Required fields are marked *