fbpx
Loksins! Við höfum opnað heimasíðuna okkar! Fáðu 20% afslátt af öllum vörum í vefverslun Kavita með því að skrá þig á póstlista.
Nýtt

Krakkamixtúra Fjallagrasa með súkkulaði

1.890 kr.

Krakkamixtúra fyrir börn 1 árs og eldri með fjallagrösum og súkkulaði bragði. Vinnur gegn hósta og særindum í hálsi.

Þessi bragðgóða fjallagrasa krakkamixtúra með súkkulaðibragði hefur mýkjandi áhrif og er góð gegn særindum í hálsi. Virkni sína sækir mixtúran í fjallagrasaþykkni með fjölsykrum sem mynda þunna himnu yfir slímhúð í hálsi og efri hluta öndunarvegar.

Fjallagrasa krakkamixtúra með súkkulaðibragði er án alkóhóls og hentar því börnum frá eins árs aldri, enda höfðar súkkulaðibragðið vel til barna.

Fjallagrasa hálsmixtúrur hafa mýkjandi áhrif og eru góð vörn gegn hósta, særindum og hvers konar óþægindum í hálsi, vegna fjallagrasanna sem þau innihalda en þau hafa mýkjandi áhrif á slímhúð í hálsi.

Fjölmargar rannsóknir virtra vísindamanna hafa sýnt að virku efnin í fjallagrösunum eru ónæmisörvandi og geta hindrað vöxt baktería og veira. Niðurstöðurnar styðja því vel við aldagamla trú manna á heilsugildi grasanna og að lækningamáttur þeirra eigi við rök að styðjast.

ml

200

Notkun

Hristist fyrir notkun.
Notist 3 – 5 sinnum á dag:
1 teskeið (5 ml) handa börnum eldri en 1 árs.
Hver flaska inniheldur 20 – 30 daga skammt af hóstamixtúru.

Innihaldsefni

Vatn, maltitólsýróp, glúkósasýróp, fjallagrasaþykkni, súkkulaðiþykkni og pektín.

Tengdar vörur

4.690 kr.

Fyrir venjulega húð. Viðheldur réttu rakastigi fyrir húðina og styrkir....

3.190 kr.

Ein elsta varan frá Dr.Hauschka. Milt kornakrem sem örvar húðina....

3.890 kr.

Hreinsisalvi sem leysist upp í volgu vatni og breytist í....

3.790 kr.

Lavender olía sem hefur sefandi áhrif á hug og líkama.....
Scroll to Top