fbpx

Fáðu 20% afslátt af öllum vörum í vefverslun Kavita með því að skrá þig á póstlista.

SYNERGIZE-YOUR-GUT®

3.799 kr.

SYNERGIZE-YOUR-GUT® blanda 10 góðra bakterístofna með náttúrulega efninu inúlín sem hefur það hlutverk að styðja við og virkja góðgerla í líkamanum. Sérvaldir góðgerlar sem styðja sérstaklega við þarmaheilsuna og bæta meltinguna. Formúlan geymist vel við stofuhita og hentar því einstaklega vel á ferðalögum. Hentar fyrir alla fjölskylduna frá 6 ára aldri.

SKU 5949212000079 Vöruflokkur : , , Merki :

SYNERGIZE-YOUR-GUT® inniheldur 10 góða bakterístofan (7 lactobacillus og 3 bifidobacterium) og inúlín sem gegnir því hlutverki að losa bakterístofnana beint í þarma og örvar og styður við virkni þeirra í líkamanum. Formúlan er hönnuð þannig að góðgerlarnir brotni ekki niður og þannig að góðgerlarnir hafi fulla virkni í þörmum. Geymist fullkomlega í stofuhita og þarf ekki að geyma í kæli, auðvelt að ferðast með og nota hvar sem er. Bætir meltingu allrar fjölskyldunnar (frá 6 ára aldri) með einungis einu hylki á dag.
Hentar vel þeim sem vilja bæta meltinguna daglega, eru á ferðalagi og vilja styðja við meltinguna á meðan eða þurfa aukin stuðning á meðan sýklalyf eru tekin.

Lactobacillus acidophillus
7 milljarðar CFU
Gagnleg baktería sem tekur sér bólfestu í munnholi, þörmum og leggöngum, ein eða ásamt öðrum lactobacillus-stofnum.

Lactobacillus rhamnosus
7 milljarðar CFU
Góð baktería sem getur þrifist vel í slímhúð þarmanna. Kemur einnig að gagni við að tryggja gott örverulíf í þvag- og kynfærum. Getur komið í veg fyrir þvagfæra- og sveppasýkingar. Styrkir þarmana eftir notkun sýklalyfja.

Lactobacillus casei
7 milljarðar CFU
Hefur þann einstaka eiginleika að geta aðlagast ýmiss konar umhverfi. Hefur jákvæð áhrif á þarmaflóru og veitir vernd gegn óþægindum í meltingarvegi.

Lactobacillus paracasei
7 milljarðar CFU
Finnst náttúrulega í meltingarfærum og þvag- og kynfærum og stuðlar að heilbrigðum vexti góðra baktería í því umhverfi. Getur ásamt öðrum lactobacillus-stofnum dregið úr ofnæmistilfellum hjá börnum.

Lactobacillus plantarum
7 milljarðar CFU
Hægt að finna í munnholi og meltingarvegi og getur virkað gegn skaðlegum bakteríum. Meðan á gerjunarferlinu stendur getur þessi baktería átt þátt í framleiðslu gagnlegra efnasambanda eins og B2-vítamíns.

Lactobacillus salivarius
7 milljarðar CFU
Getur haft jákvæð áhrif á munnheilsu og myndað efnasamband sem hefur eiginleika til þess að verjast skaðlegum bakteríum í meltingarvegi.

Lactobacillus gasseri
7 milljarðar CFU
Fjölhæf baktería sem þolir lágt sýrustig og getur því fundist í maga og dregið þar úr virkni gallsýru. Finnst náttúrulega í munnholi, þörmum og kynfærum.

Bifidobacterium breve
7 milljarðar CFU
Góð baktería sem tekur sér bólfestu í meltingarvegi fullorðinna en einnig barna, þar sem hún finnst hjá stórum hluta ungra barna. Rannsóknir benda til þess að Bifidobacterium breve eigi þátt í að styrkja slímhúð meltingarfæra og staðbundið ónæmissvar.

Bifidobacterium lactis
7 milljarðar CFU
Góð baktería sem á þátt í að viðhalda eðlilegum flutningi fæðu um meltingarveginn sem verður fyrir truflun af völdum sýklalyfja. Dregur einnig úr magaóþægindum af völdum fæðu sem inniheldur glúten.

Bifidobacterium longum
7 milljarðar CFU
Hefur þann hæfileika að fara þvert í gegnum meltingarveginn og þangað sem hennar er þörf. Á þátt í að viðhalda heilsu meltingarvegarins með því að koma jafnvægi á fæðuflutning og lífeðlisfræðilega svörun við ofnæmisvöldum.
Inúlín
319 mg
Inniheldur uppleysanlegar trefjar sem gegna hlutverki í því að styðja virkni gagnlegra baktería, halda jafnvægi á fæðuflutningi, viðhalda góðri meltingarheilsu og stuðla að upptöku steinefna eins og kalsíums og magnesíums.

hylki

30

Notkun

SYNERGIZE-YOUR-GUT® hentar fyrir góða meltingu, góða þarma- og ristilstarfsemi, losun uppsafnaðs lofts og þembu, eftir sýklalyfjanotkun eða meðan á henni stendur, styrkingu ónæmiskerfis, ofnæmisviðbrögð og góða munnheilsu. Góðgerlar hafa víð áhrifa líkamlega heilsu ss. ónæmiskerfið, efnaskipti, meltingu, upptöku næringarefna, andlega heilsu svo eitthvað sé nefnt!

Fullorðnir og börn 6 ára og eldri taka eitt hylki á dag með máltíð eða vatnsglasi eða samkvæmt fyrirmælum hæfs heilbrigðisstarfsmanns.

Innihaldsefni

Blanda af stofnum góðgerla 7 billion CFU hver stofn**:
L. acidophilus
L. Salivarius
L. Rhamnosus
L. Gasseri
L. Casei
L. Paracasei
L. Plantarum
B. Breve
B. Lactis
B. Longum
Inulin 319 mg**

**Daily value not established

Tengdar vörur

Scroll to Top