Andoxun er sannkölluð ofurfæðublanda með íslenskum krækiberjum og rauðrófum. Blandan er rík af andoxunarefnum, járni og virkar vatnslosandi.
Krækiber eru þekkt fyrir að vera vatnslosandi og eru rík af andoxunarefnum eins og flavonóíð sem geta hjálpað við að styrkja ónæmiskerfið og e- og c-vítamínum. Neysla krækiberja er einnig talin hafa jákvæð áhrif á taugakerfið, heilastarfssemi og sjón.
Rauðrófur eru þekkt fyrir að vera þekktar fyrir að bæta súrefnisupptöku og auka blóðflæði og hafa því slegið í gegn meðal íþróttafólks þar sem með auknu blóðflæði eykst snerpa, orka og úthald. Rauðrófurnar eru einstaklega næringaríkar. Þær innihalda C vítamín, kalíum og önnur nauðsynleg steinefni sem styrkja ónæmiskerfið. Þær styðja einnig við afeitrunarferli lifrar og eru einstaklega járnríkar.