fbpx

Fáðu 20% afslátt af öllum vörum í vefverslun Kavita með því að skrá þig á póstlista.

Nýtt

Krakkamixtúra Fjallagrasa með appelsínu

1.890 kr.

Krakkamixtúra fyrir börn 1 árs og eldri með fjallagrösum og appelsínu bragði. Vinnur gegn hósta og særindum í hálsi.

Þessi bragðgóða fjallagrasa krakkamixtúra með appelsínubragði hefur mýkjandi áhrif og er góð gegn særindum í hálsi. Virkni sína sækir mixtúran í fjallagrasaþykkni með fjölsykrum sem mynda þunna himnu yfir slímhúð í hálsi og efri hluta öndunarvegar.

Fjallagrasa krakkamixtúra með appelsínubragði er án alkóhóls og hentar því börnum frá eins árs aldri, enda höfðar appelsínubragðið vel til barna.

Fyrirtækið Íslensk fjallagrös hf. (Iceherbs) framleiðir heilsumixtúrur úr fjallagrösum og öðrum íslenskum náttúruvörum undir vörumerkinu Natura Islandica. Vörumerkið Natura Islandica vísar til þeirra verðmæta sem felast í hreinleika íslenskrar náttúru.

Fjölmargar rannsóknir virtra vísindamanna hafa sýnt að virku efnin í fjallagrösunum eru ónæmisörvandi og geta hindrað vöxt baktería og veira. Niðurstöðurnar styðja því vel við aldagamla trú manna á heilsugildi grasanna og að lækningarmáttur þeirra eigi við rök að styðjast.

ml

200

Notkun

Hristist fyrir notkun.
Notist 3 – 5 sinnum á dag:
1 teskeið (5 ml) handa börnum eldri en 1 árs.
Hver flaska inniheldur 20 – 30 daga skammt af hóstamixtúru.

Innihaldsefni

Vatn, maltitólsýróp, glúkósasýróp, fjallagrasaþykkni, appelsínuþykkni og pektín.

Tengdar vörur

Scroll to Top