Túrmerik hefur verið þekkt í þúsundir ára sem lækningarjurt og sem allra meina bót. Hún hefur verið notuð vegna fjölbreytta eiginleika sína og þá sérstaklega sem bólgueyðandi jurt og sem kröftug andoxun.
Náttúrulega bólgueyðandi eiginleikar túrmeriksins má rekja til virka efnisins curcumin og hefur einnig sterk andoxandi áhrif. Getur dregið úr bólgum og liðverkjum og hefur jafnvel hjálpað þeim sem glíma við liða-, slit- og þvagsýrugigt.
Túrmerik getur einnig verið áhrifaríkt við ýmis konar meltingarvandamálum eins og bólgum í maga, ógleði, magakrampa o.s.frv.
Virka efnið curcumin hefur styrkjandi áhrif á taugakerfið og heilastarfsemi og getur til dæmis unnið gegn álagi og streitu.
Fjallagrös eru viðurkennd lækningajurt, sem stundum hefur verið kölluð Gingseng Íslands. Fjallagrös hjálpa einnig við að draga úr bjúg. Fjallagrös eru rík af steinefnum, einkum járni og kalsíum, og bera í sér fléttuefni sem hindra óæskilegar bakteríur.