Fjallagrös eru ein af upphafsvörum ICEHERBS og inniheldur 100% hrein og íslensk fjallagrös. Fjallagrös (Cetraria islandica) er viðurkennd lækningarjurt sem hefur ýmsa eiginleika og þá sérstaklega fyrir meltinguna. Fjallagrös hafa oft verið kölluð gingsen Íslands vegna þess hve heilnæm þau eru.
Fjallagrös eru í raun flétta, þörungar og sveppur í samlífi. Þau innihalda betaglúkantrefjar og eru rík af steinefnum, einkum járni og kalsíum, ásamt fléttuefni sem geta hindrað og dregið úr óæskilegum bakteríum.
Fjallagrös eru þekkt fyrir að geta bætt meltingu, styrkt þarmana og jafnvel haft áhrif á þyngdartap. Fjallagrösin innihalda leysanlegar trefjar, Lichenin og Isolichenin, sem geta myndað mýkjandi himnu á slímhúð í maga og dregið úr særindum eða óróleika í maga, bætt meltingu og mýkt hægðir. Þá geta fjallagrös hjálpað til við að draga úr bjúg.